NÁTTÚRUUNNANDI ALLA ÆVI.

Náttúra Íslands er fjölbreytileg og margbrotin,
þar er pláss fyrir okkur öll sem henni unnum.

28 maí, 2010

Ávallt á göngustíg - Aðgerðir gegn göngu utan stíga - Til samanburðar

Þetta gæti staðið á vefsíðu ráðuneytis í framtíðinni:

"Göngur utan stíga virðist vera vaxandi vandamál á Íslandi. Margbrotin náttúra Íslands, sem er lítt snortin miðað við mörg þéttbýlli ríki, er eitt helsta aðdráttarafl þeirra sem ferðast um landið. Landið er víða viðkvæmt fyrir ágangi og öll gáleysisleg umferð getur valdið skemmdum á náttúrunni sem eru ár eða jafnvel áratugi að jafna sig.

Umhverfisráðuneytið hefur ekki unnið aðgerðaráætlun gegn göngu utan stíga undir heitinu Ávallt á göngustígum" *), - en ef svo væri gæti hún verið svona: sjá aðgerðaráætlun.pdf, ef hún væri í samræmi við þá aðgerðaráætlun sem ráðuneytið hefur nýlega látið frá sér fara, sjá aðgerðaráætlun.pdf.

*) Sjá vef umhverfisráðuneytisins til samanburðar.

Sumir textar eru sakleysislegir en skoðanamyndandi. Þessir myndatextar gefa í skyn að för eftir göngufólk séu óeðlileg í náttúru Íslands.

Spor í sandi Hornvíkur eftir utanstígagöngur.

Gönguslóði í viðkvæmum gróðri í ósnortinni náttúru Hornstranda.

Gengið í viðkvæmri náttúru í hlíðum Keilis á Reykjanesi.

Dæmi um vandaðan göngustíg. Hér getur fólk gengið án þess að þurfa að stíga í viðkvæma náttúru Íslands.